Sendingarskilmálar
Staðfestingarpóstur er sendur þegar pöntun hefur verið móttekin. Þegar búið er að vinna úr pöntuninni er sendur annar tölvupóstur með staðfestingu. Komi það fyrir að vara sé ekki til á lager munum við hafa samband við viðskiptavininn. Vinsamlegast farið yfir og gangið úr skugga um að heimilisfang sé rétt skráð.
Ísland:
Við bjóðum upp á hefðbundna sendingu í næsta póstbox með Dropp. Vinsamlegast gefið okkur 2-3 virka daga til að vinna úr pöntuninni fyrir sendingu. Við leggjum okkur fram við að afgreiða allar pantanir eins fljótt og auðið er. Afhendingartími er að jafnaði 2 til 5 virkir dagar. Athugið að helgar og almennir helgidagar teljast ekki til virkra daga.
Alþjóðlegar sendingar:
Allar pantanir eru sendar frá Íslandi. Við bjóðum upp á hefðbundnar sendingar innan Evrópu með Póstinum. Fyrir sendingar til Bandaríkjanna (U.S.A.), vinsamlegast sendið okkur fyrirspurn með tölvupósti á nonni@dead.is.